Prófíll

  • Nafn: Linda María Jónsdóttir
  • Netfang: lindajons@msn.com
  • Staður: Reykjavík
  • Heimilisfang: Unufell 46
  • Símanúmer: 8496673
  • Atvinna: Öryrki
  • Hjúskaparstaða: Ógift
  • Um mig: Linda María Jónsdóttir er einstæð tveggja barna móðir í Fellahverfi í Breiðholti. Börn: María Hödd í sambúð á Selfossi með Rúnari. Kormákur Atli býr heima. Á heimilinu er einnig kötturinn Tumi og er hann húsbóndinn á heimilinu.
  • Annað: Ef að þú veist um einhvern ógiftann karlann sem er virkilega skemmtilegur, endilega benda mér á hann.

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Könnun

Hvenær verða jólin í ár ??

Leikur dagsins

Leit

NÝ SÍÐA

13. nóvember 2007 klukkan 10:23
Ný bloggsíða http://bestalitla.blog.is

KÚBA KÚBA KÚBA

13. nóvember 2007 klukkan 09:44
Annað hvort flensa eða túrverkir..... arg, hvað ég er orðin þreytt á þessu öllu. Af hverju er ég ekki bara heilbrigður karlmaður...... kannski af því að ég hef ekki áhuga á því he he he

Þaö var hringt í mig frá Vogi í morgun, það var verið að kalla mig inn í meðferð...... HALLÓ !! er ekki allt í lagi ?? Hvað á ég að gera þangað ?? Ég sótti um innlögn í apríl HA HA HA og það er verið að kalla mig inn núna. Ekkert smá hallærislegt, en það er greinilegt að það er langur biðlisti þarna inn. Vonandi að einhver sem hefur haft mikla þörf á því hafi fengið rúmið mitt ;o)
 

Unnur kom í heimsókn í dag, en hún kom einmitt heim frá Slóveníu í gær. Hún kom með karton af Winston handa mér, frábært. Það ætti að duga mér þangað til ég fer til Kúbu, þar sem að ég reyki nú ekkert svakalega mikið. Og Kúbuferðin er 5 desember.
Við Vigga vorum eimitt að tala um ferðina í dag og okkur er farið að hlakka slatta mikið til. Vorum að skoða myndir af hotelinu í dag, google-uðum það og sjá hvað mikið er í boði þarna. Ég er ekkert smá spennt, ég er viss um að ég á edtir að taka mikið af myndum, þetta er geðveikur staður. Við verðum á flottu hóteli í Varadero. Ég og Vigga saman í íbúð og Hrafnhildur mama og vinkona hennar í öðru.
 

Annars bara rólegur dagur, smá að þvo þvott og liggja í bælinu þess á milli.
Ég horfði reyndar á teiknimyndina ÆVINTÝRAFERÐIN með Kormáki í dag, önnur teiknimyndin í þessari viku. En hún var bara bráðskemmtileg og spennandi.
Ég er að hugsa um að fara að byrja á því að horfa á skrípó með Kormáki einstaka sinnum og læt ykkur svo vita hvernig myndin er, ef að þið skylduð vilja sjá hana ha ha ha
 

Vá, núna get ég ekki hætt að hugsa um KÚBU, get ekki beðið eftir því að fara þangað.
Held að ég hætti bara núna og drífi mig inn í herbergi að pakka niður fyrir ferðina.
Takk fyrir mig í bili, sjáumst hress og ekkert stress bless bless Hemmi Gunn.
Bææææææææææ
Kv. Linda litla. 

Góðir dagar

11. nóvember 2007 klukkan 00:07
Ótrúlega furðulegar vangaveltur í mínum huga....... Þegar að Helgi og Garðar (bræður mínir) voru litlir þá voru þeir svo líkir að annar þeirra var með gult merki og svo átti annar brúna skó og hinn bláa til að þekkjast í sundur. Svona líka ofsalega líkir..... en það gæti alveg verið möguleiki á því að þeir skiptu um nafn þegar þeir voru litlir og gleymdu svo að skipta yfir aftur, þannig að kannski er Garðar Helgi og Helgi Garðar ?!?!?!?! Ég meina, við höfum ekki hugmynd um það. Kannski fór þessi platleikur þeirra út í vitleysu...... ég meina býr þá Guðrún með Helga og er Garðar giftur Kristbjörgu og tveggja barna faðir ?? Pælið aðeins í þessu ef að þetta er málið.

Það eru búnir að vera fínir dagar hjá mér. Ég og Björk fórum á Ruby Tuesday á föstudaginn og fengum okkur að borða, svo eyddi ég nánast restinni af deginum með Maríu í BYKO, eða kannski ekki alveg en það fór mikill tími í það, en reyndar tókst mér að kaupa eina jólagjöf þar.
Vigga og Florin komu svo seinni partinn, en þau komu við í Kattholti og fengu sér kettling sem að er þvílík kelirófa.

Á laugardaginn ræsti Vigga mig um klukkan 9. Um 11 leytið fórum við í IKEA og eyddum slatta af peningum þ.a.m. keyptum við efni í jólagjafir við Kormákur sem að hann kemur til með að klára að búa til heima og svo pappír, borða, límband, skraut og slíkt á pakkana. Fljótlega að því loknu renndu þau hjónakornin heim á Bifröst.  
María kom í bæinn til að sækja bakaraofninn og eldavélina sem hún keypti í ELKO í gær og við Kormákur þvældumst með henni í ELKO, toy´s R us, Hagkaup og fleira fram að kvöldmat. Kvöldið í kvöld var fínt, við Kormákur komum okkur fyrir í rúminu hans með 50 kodda og 32 sængur og horfðum á “teenage mutant ninja turtles” og þetta er bara alveg bráðskemmtileg mynd. Mæli eindregið með henni, spennandi og hröð. ;o)
Eftir barnatíma á morgun þá hendumst við Kormákur í mat til Bjarkar og Bergs, en það verður örugglega fínn endir á góðri helgi.

Annars bara hafið það gott...
kv. Linda litla.

Stutt í helgina

08. nóvember 2007 klukkan 17:39
Þeir skutust upp í huga minn rónarnir Bogi og Örvar í morgun, ekki það að ég geri mikið af því að hugsa um róna en það skeði samt í morgun. Ég horfi ekki mikið á Spaugstofuna en þeir hafa nú fylgt spaugstofumönnum í mörg ár, ég verð eiginlega að segja að það er mikill missir að Randver Þorláksson er ekki lengur í Spaugstofunni, en samt........ finnst mér bara missir í Boga og Örvari. Persónulega þoli ég ekki Randver Þorláksson. Og ef að Rónarnir væru ekki til þá væri mér svo skítsama um þennan leikara. Ég myndi miklu frekar kjósa Þórhall Sigurðsson þ.e.a.s. Ladda, mér finnst hann alltaf jafnfyndinn karakter. Þið sem fórum á showið hans “Laddi sextugur” í Borgarleikhúsinu munið nú eftir því. En þar var hann algjör snilld með öll sín gervi alveg frá Þórði húsverði í Eirík Fjalar. 

Það er byrjað að sýna Skilaboðaskjóðuna í Þjóðleikhúsinu núna, ég man að  ég fór á hana með Maríu þegar hún var lítil og mér fannst leikritið snilld. Ég held að ég hafi skemmt mér mikið betur en María gerði. Mig langar mikið að fara með Kormáki á leikritið, efast ekkert um að ég eigi eftir að skemmta mér vel á því.
 

Það var mikill þvælingur á mér í gær, ég, Unnur og Kormákur fórum í europris, góða hirðirinn og Hagkaup og auðvitað tókst mér að kaupa eitthvað á öllum stöðunum. Ég er ótrúlegur snillingur í að eyða peningum ef að ég á þá til. Í Europris keypti ég slatta af hreinlætisvörum og þvottaefni, í Góða hriðinum keypti ég kopp og hringlu (ónotuð, var í plastinu) og í Hagkaup keypti ég nesti fyrir ormalinginn minn hann Kormák og svo fór ég í apotekið þar og sótti mér pensilín og púst, þannig að ég ætla nú bara að fara að vona að ég fari eitthvað að lagasat eitthvað af þessari ógeðslegu pest og fer kannski líka að fá röddina mína aftur. Vegna eyðslusemi minnar held ég að það sé best að halda sig bara heima hjá sér.
 

Ég svaf þar til að Kormákur kom heim ur skólanum í dag. Þá snáfaðist ég á fætur, ekki seinna vænna. Björk og Bergur komu og Unnur, ég var búin að lofa að lita á henni hárið áður en hún færi til Sloveniu. En hún er einmitt að fara þangað klukkan 5 í fyrramálið held ég. Þannig að ég skellti auðvitað lit í hárið á henni og núna er hreinlega allt annað að sjá kellu. Það er búið að vera fullt hús af börnum hérna í dag, og mikið gaman hjá Kormáki.
Ætli ég verði ekki að blogga eitthvað fyrir hann á eftir þegar ég er búin hér.

Annars bara allt sæmó að frétta af mér og mínum. Öll að koma til, er aðeins hressari reyndar smá hitavella í mér ennþá og röddin fer alveg að koma. 
Nóg í bili elskurnar mínar.
Hafið það gott þangað til næst.
Bææææææ
Kv. Linda litla.

Skítur skítur skítur

07. nóvember 2007 klukkan 09:16
Það var svo sannarlega “pain in the fucking ass” að koma Kormáki í skólann í morgun, hann ætlaði sko ekki að vakna og svo þegar hann vaknaði þá ætlaði hann sko að liggja í rúminu í allann dag. Ég fór á fætur hálf átta og náði honum fram úr fimm mín yfir átta, en hann mætti a.m.k. á réttum tíma í skólann. Við komum við í bakaríinu og keyptum nesti og þegar við opnuðum skólann þá hringdi bjallan.

Það eru búnir að vera rólegir dagar hjá mér undanfarið, er bara búin að liggja í einhverju pestarógeði, er ekki alveg sátt við hvað ég er að fá svona ógeð aftur og aftur. En ég er að fara í apótek í dag og ná mér í pensilín og púst, nenni ekki að standa í þessu lengur.

Ég heyrði í Björk í gær og við ætlum að fara að rífa okkur upp og fara að byrja á því að föndra á morgnana, við erum þá ekki sofandi fram eftir degi ef að við gerum það. Spurning hvað við förum að föndra, ég á nú reyndar einhvern helling af föndurdrasli síðan þarna um árið en við sjáum hvað til er og við kaupum okkur þá bara eitthvað.

Vá, ég lenti í þvílíka skítverkinu í gær.......... Málið er að ég er búin að vera í rúminu undanfarið með flensu og hef ekki alveg verið að sinna mínum skyldum. Þessir kettir mínir hófu mótmæli í gær, það var hálfur poki af kattasandi inni á klósetti undir vaskinum og annar hvor þeirra Tumi eða Patti tætti pokann í sundur, þannig að það var katttasandur út um allt og ekki nóg með það þá var skilinn eftir LOLLI í sandinum sem eftir var í pokanum. Þetta tók mig dágóðann tíma, svitakóf, hósta, einn ryksugupoka og skúringagræjur. En þeir höfðu a.m.k. vit á því að drulla inni á klósetti, thank God for that .... you know.

Jæja, er þetta ekki bara ágætt í bili. Það er lítið að frétta hjá mér  og enn minna að ske í mínu lífi.
Þannig að þangað til næst, hafið það bara gott. Bææææææ
Kv. Linda litla.

Löng helgi

05. nóvember 2007 klukkan 20:39
Þetta er búið að vera löng helgi. Kormákur fór með Maríu í sveitina á fimmtudaginn og svaf hjá þeim í Súluholti. Þannig að við Björk fórum á þvæling um allann bæinn og enduðum þvi heima hjá henni og kjöftuðum langt fram eftir og það endaði bara mneð því að ég gisti í sófanum hennar þá nóttina.

En föstudeginum eyddi  ég með Maríu og Kormáki. Við fórum þ.a.m. í elco en þar var keypt play station 2 tölva og einn leikur og því fylgdi að sjálfsögðu þvílíka gleðin. Þegar Kormákur var farinn til pabba síns, fórum við María niðrí bæ að þvælast og enduðum í Pítunni í Skipholti að borða með Viggu og Florin. Um kvöldið kíktum við Unnur til Bjarkar og þar fylltist allt af fólki. Konni, Þröstur, Chris, Unnur,Björk og ég. Við enduðum niðrí bæ, hef aldrei áður lent í þvílíka leiðinda fulla kallinum þar eins og þá, aldrei lent í svona leiðinu fólki áður, ég var komin að því að berja kallinn, en þau stoppuðu mig af og sögðu að mér yrði bara hent út.Mér var alveg sama, þessi kall var svoooooo leiðinlegur vá...... Hitti Palla og ég er ekki að grínast, hann er svo fyndinn að ég hreinlega var að deyja úr hlátri. Einnig hitti ég x hann Sigga og ég hittti eiginlega bara fullt af fólki. Byrjuðum að fara á Dub en enduðum svo kvöldið á Amster. Þar voru Skúli , Steini og fleiri.
 

Jæja, á laugardagskvöldið sátum við yfir dvd hérna heima. Ég, Vigga og Florin og horfðum á Top Secret, og hún er alltaf jafn fyndin, sá meira að segja eitt atriði sem að ég hef ekki séð áður þó að e´g hafi séð myndina ca. 146 sinnum. Fyndið, kjéllingarnar í myndinni..... það er nokkuð ljóst að þetta er gömul mynd þar sem að allar voru þær nánast flatbrjósta, það var sko ekkert silicon æði komið af stað þarna, enda held ég að myndin sé síðan 1984.
 

Sunnudagurinn fór í hósta, hor, hnerra, hæsi og slíkt. Ég er búin að vera að kafna úr kvefi. Var orðin frekar þreytt á tímabili þegar Vigga, Florin, Unnur, María ,Rúnar og Kormákur voru hérna öll...... var bara drullulasin og er búin að liggja í bælinu í allann dag líka.
Er aðeins að kíkja fram og hjálpa Kormáki að læra og gefa honum eitthvað að borða og kíkja aðeins í tölvuna.
Þannig að ég segi þetta bara ágætt í bili fyrst að ég er búin að gefa ykkur nasaþefinn af helginni hjá mér. Hún var löng og skrautleg byrjaði á fimmtudegi og endar á þriðjudegi, ég er eiginlega ekkert hrifin af þessum vetrarfríum, held að það væri nær að lengja bara sumarfríið í staðinn.
Jæja..... hafið það gott, og sjáumst
kv. Linda litla.




Kormákur að fara frá mér ??

31. október 2007 klukkan 21:18
Flottur dagur í dag, smá kalt en samt ekkert svakalega. Við Björk fórum á þvæling eftir hádegið, ætluðum reyndar að fara fyrr en við sváfum báðar til 2 he he he ótrúlegar. Komum hérna heim um hálf 5 og fengum okkur donuts og kaffi.

Ég hitti Guðný Bæ í dag og hún sagði mér að Jórunn væri dáinn, blessuð sé minning hennar. Mér brá mikið við að heyra það, hún var ekki orðin fertug. En svona er bara lífið, það er misjafnlega langt eins og við erum mörg.
 

Eins og þið vitið þá er tengdó allra mjög seinheppin oft. Hún kom til mín seinni partinn og ætlaði að biðja mig að lita á sér hárið, ekkert mál. Ég fór að skoða litinn........ og hvað ?? Hún keypti sér rauðann lit !!! Þetta var ekki alveg liturinn sem hún ætlaði að kaupa sér, svona fer það þegar fólk er oft utan við sig.
 

Ég ætla að rífa mig á fætur snemma í fyrramálið og henda mér í klippingu og litun, það er orðið svo úr sér vaxið hárið og grá sprengt að ég er bara ekki að höndla það lengur. Get ekki verið svona grá deginum lengur.

Ég var að átta mig á þvi áðan að það er ekki nema um tveir mánuðir í ömmustelpuna mína. Ég verð að viðurkenna að það er komið í mig slatti af “kvíðahlakki”. Fyrir þá sem ekki vit ahvað kvíðahlakk er þá er það tilhlökkun og kvíði saman í poka.... mjög skrítin tilfinning.
 

Kormákur var að fara út um dyrnar, hann ætlar að gista aftur heima hjá ömmu sinni í nótt. Ég held að hann sé kominn með einhverja ömmusíki núna. Tvær nætur í röð !!! Ég er bara að verða hrædd um að hann fari að flytja til hennar og hvað verður þá um mig ?? Þá verð ég bara einstæð barnlaus móðir he he he
 

Varðandi gestaganginn Hrafnhildur, þá átti ég við að hún Gulla Pulla væri duglegust að kvitta og tel hana því minn tryggasta aðdáenda.

Nóg í bili...... blogg þrjá daga í röð.
Núna er ég komin með bullandi hita, hósta, hnerra, hor, magaverki, augnsýkingu og niðurgang.
Bææææææææææææ.....
Kv Linda litla.

Innantómt blogg í dag.

30. október 2007 klukkan 23:33
Þar sem ég hef tekið eftir að Gulla er tryggasti gesturinn hér á síðunni minni hef ég ákveðið að skella inn nokkrum línum til hennar.
"Allir stukku úr sófanum þegar að sófinn hrundi, nema Gulla........ hún var pulla"

Jæja, annars er bara rólegeheit á mínu heimili. Ég var komin á fætur fyrir hádegi aldrei þess vant, Björk og Bergur komu í heimsókn í morgun og auðvitað gátum við Björk þambað kaffi og fíflast og hlegið eins og vanalega....damn... hvað ég sakna þess að hafa hana ekki hérna hjá mér.

Kormákur lá í jólagjafaundirbúningi í dag, hann er búinn að búa til jólagjafir handa öfum sínum og ömmum. Mikið sem að hann er búinn að hafa gaman af því að dunda sér svona. Hann fór svo með ömmu sinni heim í kvöld og ætlaði að gista hjá henni og skildi mig eftir aleina heima, og ég er ekkert búin að vera neitt smá einmanna í kvöld eftir að hann fór. Ef að hann hefði verið heima þá býst ég við því að ég hefði nú bara farið í rúmið með honum í staðinn fyrir að hanga í tölvunni og kjafta við Júlla í símann.

Það er búið að vera leiðindaveður í dag, fyrst endalaus snjókoma og svo leiðindarok og rigning.... óþolandi veður. Björk ætlar að koma til mín á morgun og við ætlum að fara að þvælast eitthvað saman. Það verður fínt að eyða smá tíma með henni.
Ég heyrði í Maríu í dag og ég býst við að hún komi á fimmtudaginn að heimsækja Kormák og fari með hann á þvæling, það verður fínt. Þá get ég lagt mig á meðan he he he
Annars er stefnan að henda sér í litun og klippingu á föstudaginn og flikka aðeins upp á lúkkið hjá sér.

Annars hef ég eitthvað lítið að segja núna, veit eiginlega ekki af hverju ég er að blogga, ég bloggaði jú í gær og hef ekkert að tala um tvo daga í röð. Ég er jú búin að blogga fyrir Kormák í kvöld og henti inn nokkrum myndum hjá honum í október albúmið.
Nóg í bili..
Hafið það gott, sjáumst. Bæææææ

Kv. Linda litla

BRRRRRRR..... veturinn er kominn, eða a.m.k. snjórinn he he

29. október 2007 klukkan 12:42
Jæja, þá er góð helgi liðin, Vigga og Florin komu á föstudaginn og voru hér fram á sunnudag. Á laugardaginn tókum við rúnt níður í bæ og löbbuðum Laugaveginn og kíktum á 10 dropa og svo í Kolaportið, þaðan í Hallgrímskirkju og svo í bílinn aftur.

Kormákur fór til Unnþórs seinni partinn og ég, Vigga og Florin fórum í keilu og pool of fengum okkur að borða í Keiluhöllinni. Þetta vara rosa gaman og auðvitað vann ég ekkert frekar en vanalega, en það skiptir ekki máli skemmti mér samt mjög vel. Á laugardagskvöldið fórum við Unnur til Bjarkar og höfðum það fínt, þar var setið langt fram eftir nóttu.


Kormákur kom rétt eftir hádegi heim á sunnudeginum og María kom og var hjá okkur og ég bakaði A´la linda pannakaka í liðið.

Annars var þetta bara frekar róleg og ágætis helgi sem að fór reyndar ekki eins og hún átti að fara.


Það var allt hvítt í morgun þegar við Kormákur vöknuðum, og hann söng hástöfum “ það er kominn vetur.... það er kominn skemmtilegur vetur” og vildi að ég myndi syngja með og é ggerði það , en ég get ekki ímyndað mér hvað fólkið á hæðinni fyrir neðan hefur hugsað þegar það heyrði til okkar.


Emilía hættir að vinna á miðvikudaginn og byrjar í Grettistakinu og við ætlum að reyna að plana einhverja rútínu fyrir okkur. Vona bara að það verði ekki fullt prógramm hjá henni  í Grettistakinu. Ef að þetta er ekki spennandi þá ætlar hún að sækja um í Hringsjá með mér í nóvember, en skólinn byrjar þá í janúar þar. Ég er búin að kíkja yfir planið hjá Hringsjá og það leggst vel í mig.
 Svona í lokin, þá er ég hætt að leita mér að kærasta. Það er ekkert að ganga hjá mér, kannski kemur hann bara ef að ég hætti að leita.
Hafið það gott og endilega skilið eftir sönnunargögn um að þið hafið kíkt á síðuna. Bæææææææææææææ

Linda litla.

smá humor

26. október 2007 klukkan 03:01

Funny Comments Codes

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Nýjast á HumorPix

Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right Funny Images, When you see it… Funny Images, People who think outside the patterns are special! Funny Images, May the force be with you.

Klukkan